“I'm an animal of the earth as any human being with virtues and defects,
with mistakes and achievements, so leave me alone.
In my memory, this memory that is me.
I do not want to forget anything.”
(José Saramago, The last notebook, Day 28, Memories)
INNOMEC – Nýjungar í stjórnun og fræðslu í öldrunargeiranum. Verkefnið er marghliða Grundtvig símenntunarverkefni undir “Lifelong Learning Programme” framkvæmt á tímabilinu nóvember 2013 til október 2015 af samstarfsaðilum frá Ítalíu (Róm, Palermo, Vicenza og Verona), Austurríki (Graz), Belgíu (Brussel), Litháen (Vilníus) og Íslandi (Reykjavík).
Hver gæti haft áhuga á að auka kunnáttu sína og beita aðferðum í fræðslu fyrir fullorðna sem búið er að prófa og þróa innan INNOMEC? Okkar markhópur eru sérfræðingar – starfsmenn og sjálfboðaliðar – þeir sem eru virkir þátttakendur í öldrunargeiranum (hjúkrunarheimili og dagþjónustur), leiðbeinendur í fræðslu fyrir fullorðna og allra þeirra sem vinna í öldrunargeiranum og háskólanema í félagsvísindum.
Þessar aðferðir er ætlaðar að veita jákvæð áhrif á líðan eldri borgara og leggja áherslu á þau lykilatriði sem eru í símenntun - er fyrir til dæmis stjórnendur í félagsmiðstöðvum, fræðslustjóra, gæðastjóra í einka- og opinberageiranum, verkefnastjóra og til að auka evrópskt samstarf og tengslanet.
Þetta eru hefðbundnar aðferðir, svo sem frásagnir og æviágrip byggð á “margmenningarlegri sýn á samfélögum og einstaklingum”
blandað með safni af minningum á starfrænan hátt ( safnað í minningarbanka Memoro) og tengt “hlustunar æfingum” sem Audio-Psycho-Phonology aðferðir kynna. Kjarni hugmynda INNOMEC er að blanda kynslóðum þar sem það er mögulegt og að öldrunarheimili/stofnunum séu opnar fyrir samfélaginu og taka virkan þátt í daglegu lífi.
Við miðlum okkar reynslu og niðurstöðum, veitum aðferðir og verkfæri fyrir eldri og yngri borgara.
Ósk okkar er að bæta og betrumbæta gæði verkefna starfsmanna í fræðslu fyrir fullorðna. Í flestum löndum er áhersla í heilbrigðisgeiranum lögð á líkama og líkamlegar þarfir þó svo að mælt sé með að andlega og félagslega hliðin sé eins mikilvæg fyrir virka öldrun{1}.
Innomec Community on Facebook
{1}Strategic Implementation Plan for the European Innovation Partnership on Active and Healthy Ageing – Steering Group Working Document – Final text adopted by the Steering Group on 17/11/11 (“Collaborative, integrated and people-centred care provisions, whether in hospitals, homes or in the community, is a way forward to sustainable and efficient care systems”
, Foreword)