Á undarförnum áratugum hefur hækkandi aldur íbúa aukist og orðið alþjóðlegt fyrirbæri, þar af leiðandi er fjölgun aldraðra orðið eitt af mikilvægustu lýðfræðilegu þróunum á 21. öld, link to: http://www.unfpa.org/).
United Nations Population Fund (UNFPA, 2012) hefur skrifað að aukning á öldruðum færir okkur tvenn skilaboð – Fögnuð og áskoranir. Það er ástæða til að fagna því nú lifum við lengur. Meðalaldur í EU löndum er nálægt 80 ár (79.9 2013, Eurostat, 2015). Sautján af tuttugu og einum (71%) löndum í EU hafa sérstaka ástæðu til að fagna afrekum siðmenningarinnar – meðaldur þessara þjóða 2013 voru meira en 80 ár (Fig. 1). Eitt af þessum löndum er Ísland – samstarfsaðili í INNOMEC verkefninu.
Því miður eru nýjustu löndin í EU – Mið og Austur Evrópa langt frá hinum Evrópu þjóðunum. Meðaldur í Mið og Austur Evrópu 2013 var 77.5 til 73.4 ár (Fig. 1).
Meirihluti af löndunum sem tóku þátt í INNOMEC verkefninu eru með langa lífslengd íbúa - Ítalía (82.1 ár), Ísland (81.3), Austurríki (80.5), Belgía (80). Litháen, sem er fyrir Austur Evrópu í þessu verkefni er með lægstu lífslengd íbúa 2013 var aðeins 73.4 ár (Eurostat, 2015a).
Fjöldi aldraða er mældur með hlutdeild eldri íbúa þjóðarinnar í heild (mynd. 2). Meðal þeirra landa sem taka þátt í INNOMEC verkefninu höfðu Ítalía stærsta hlutdeild eldri íbúa - Fjöldi 65 ára og eldri voru 20,1 prósent í 2013 (Eurostat, 2015b).
Eldri íbúar Litháen, Austurríki og Belgíu eru 18,2, 18,1 og 17,6 prósent af heildarfjölda íbúa árið 2013. Á sama tíma, voru eldri íbúar Íslands aðeins 12,9 prósent af heildarfjölda íbúa. Hlutur íbúa 65 ára og eldri í Evrópusambandinu á þeim tíma var 18,2 prósent (Hagstofu Evrópubandalaganna, 2015b).
Samkvæmt nýjustu áætlunum íbúa (Eurostat, 2014), lýðfræðilegur ferill hækkandi meðalaldurs –verður vöxtur á íbúum á aldrinum 65 ára og eldri í heildarfjölda íbúa - mun halda áfram á næstu áratugum.
Mynd 1. Lífslengd íbúa í löndum samstarfsaðila í INNOMEC verkefninu og annarra EU landa, 2013, í árum
Heimild: Eurostat, 2015a.
Mynd 2. Fjöldi aldraðra 65-79, 80 ára og eldri, í löndum samstarfsaðila í INNOMEC og annarra EU landa, 2013, í árum
Heimild: Eurostat, 2015b.
Þetta eru mikilvægar vísbendingar er varða öldrun þjóðarinnar. Hækkun á meðalaldri og aukning á hlutfalli aldraðra vekja áhyggjur á þeim árum sem bætast hafa við meðalaldurinn. Lífsgæði alddraða er áhyggjuefni vegna þessa [link að kosning N° 1]. Mun samfélagið geta veitt eldri kynslóðinni þau úrræði sem eru nauðsynleg til að tryggja farsæla öldrun (uppfylla þær þarfir eldri borgara er varðar öryggi, heilsufar og félagslega þjónustu, fræðslu, sjálfstjáningu)? Hvernig getum við skapað samfélag þar sem allar kynslóðir geta dafnað?
Auknar lífslíkur og vaxandi hlutfall aldraðra í heildar íbúafjöldanum þvingar samfélög og ríkisstjórnir til að endurskoða þeirra nálgun félagslega og fjárhagslega hlutverk sitt varðandi eldri borgara, greina þarfir þeirra og möguleika.
Til að meta félagshagfræðilega velferð eldri íbúa, þá var árið 2013 búið til nýtt tæki - Global AgeWatch Index (Mynd 3, HelpAge 2013.). Þetta tæki er einkennist af eftirfarandi þáttum:
1) Það leggur áherslu á manneskjuna - eldri manneskju; 2) það gerir alþjóðlegan samanburð að einhverju leyti mögulegan; 3) það veitir vísindalegar tillögur og leiðbeiningar hvernig á að bæta líðan eldra fólks.
Global AgeWatch Index inniheldur 13 vísbendingar flokkaðar í fjögur svið (mynd 2.): Fjárhagslegt öryggi (4 vísar), heilbrigðisástand (3 vísar), atvinna og menntun (2 vísar) og hvetjandi umhverfi (4 vísar). Fyrstu tvö sviðin – fjárhagslegt öryggi og heilbrigðisástand - endurspeglar líðan eldri borgara. Hin tvö sviðin sýna möguleika aldraðra. Nefnilega, þriðja sviðið- atvinna og menntun – áhersla á eiginleika hins aldraða, og fjórða sviðið - hvetjandi umhverfi fyrir eldri borgara.
Mynd 3. Global AgeWatch Index svæði og vísbendingar
Heimild: HelpAge, 2013
INNOMEC þjóðirnar raðast samkvæmt Global AgeWatch Index 2015 eftirfarandi: Ísland (81.8 prósent af 100), Austurríki (74.4 prósent), Belgía (63.4 prósent), Ítalía (53.5 prósent) og Litháen (43.2 prósent) (HelpAge, 2015). Ísland var það land sem kom best út varðandi eldri borgara, þar sem félagslegir og fjárhagslegir vísar voru hæstir. Litháen var hins vegar lægst á meðal INNOMEC landanna og var í 63 sæti af 96 löndum.
Til að bera saman stöðuna í INNOMEC löndunum eftir Global AgeWatch Index (Mynd 4), þá höfum við þróað velferðardemant fyrir eldri borgara í löndunum. Hver hlið á demantinum endurspeglar sitt svæði, því stærri sem demanturinn er því betri er líðan eldri borgara.
Mynd 4. Global AgeWatch Index values according to the index domain, by INNOMEC partner country, 2015, percent{2}
Heimild: HelpAge, 2015
Mynd 4 sýnir okkur að svæðið: fjárhagslegt öryggi - income security (er sýnt á mynd 4 sem efsti hlutinn á demantinum) er sterkasta hliðin hjá öllum INNOMEC löndunum – Ísland, Austurríki, Belgía, Ítalía og Litháen. Fjárhagslegt öryggi er oftast nefnt (frá 73.1 til 86.8 prósent). Heilsufar eldri borgara á hægri hlið demantsins er minnst nefnt í Íslandi, Belgíu og Ítalíu (68.7 til 78.7 prósent) á meðan heilsufar eldri borgara í Litháen er slæmt (44.2 prósent). Atvinna og menntun (neðsti hlutinn á demantinum) er ekki sterkasta hliðin – í Ítalíu og Belgíu er þessi þáttur lægstur (28.2 og 32.9 prósent) miðað við hin löndin í INNOMEC. Það er hærra atvinnu- og menntunarstig hjá eldri borgurum á Íslandi og Litháen (54.4 og 50 prósent) á meðan Austurríki er í miðjunni með 37.6 prósent. Mælingar á hvetjandi umhverfi eldri borgara (vinstri hlið á demantinum) sýnir hátt hlutfall fyrir Austurríki, Ísland og Belgíu (82.7, 78.8 og 73.4 prósent). Samkvæmt Global AgeWatch Index er Ítalía og Litháen aðens eftir hinum INNOMEC löndum (58.5 og 52.6 prósent)
Greining á lýðfræðilegri þróun öldrunar og líðan eldri borgara í INNOMEC löndunum sýndi það að aðstæður eldri borgara eru mismunandi eftir löndum. [linkur á Könnun nr.2].
Vegna þessa sjáum við þörfina fyrir okkar verkefni og markmiðin eru: (1) að bæta þátttöku eldri borgara í félags- og menningarlegu lífi; (2) að hlúa að sameiginlegri reynslu/lærdómi á milli yngri og eldri kynslóðar og fjölskyldumeðlima;
(3) að efla félagslega nálgun starfsmanna sem vinna með eldri borgurum með þá áherslu : „Þú lærir svo lengi sem þú lifir“
. Einnig efla tengslanet í Evrópu og heimalandi.
Við viljum deila niðurstöðum úr verkefninu okkar til að hjálpa til við að skapa betri aðstæður fyrir eldri borgara og þeirra vellíðan á heildrænan hátt með því að auka fjölbreytileikan og samskipti milli kynslóða. Auka tilboð til eldri borgara í þeirra nærumhverfi.
{2}Hærri “index values” bendir til betri líðan eldri bogara.