Starfshættir
AUDIO-PSYCHO-PHONOLOGY (APP)
Tilfelli og reynsla
APP aðferðin var kynnt á námskeið EU (Brussel, júní 2014, www.euro-idea.eu) fyrir starfsfólki meðeiganda INNOMEC (þátttakendum og öðrum) og að auki á öðrum námskeiðum og í teymisvinnu í sumum löndum (Litháen, april 2015; Ítalía, maí 2015 í Vicenza október 2015 í Róm), kynnt af sérfræðingnum Dr Diego Taccuso.
APP var aðlagað verkefninu eins og hér er lýst:
- Starfsmönnum var sagt að nota LIT aðeins með þessum þremur stillingum: Motor, til að örva líkamsvitund og hreyfingu; Recharge to örva sköpun og minnka stress og kvíða; Focus til að bæta einbeitingu, minni og tungumálahæfni.
- Starfsmönnum var kennt að nota tónlist (Mozart eða Folks songs) eða hljóð úr náttúrunni (fuglasöngur, rigningarhljóð, öldunið) sem var filterað af einum að þessu fyrrnefndu stillingum. Hlusta átti á tónlistina í 30 mín daglega í 15 daga.
- Það er mikilvægt að venjulega er APP þjálfun í 28 daga en í þessari rannsókn eru búið að minnka tímann í 7 og hálfan klukkutíma; að þessu verður að huga í lokaniðurstöðum.
Aðalrannsóknin með yngri og eldri þátttakendum fór fram:
- Vicenza (Ítalía), þar sem StudioCentroVeneto fékk í samstarf með sér þrjá staði: Oasi Foundation (San Bonifacio hjúkrunarheimili með 6 íbúum); Cooperative La Goccia (Dagdvöl fyrir aldraða í Nove þar sem fer fram tómstundar og félagsstarf fyrir fók sem er að hluta til sjálfbjarga en með vitræna skerðingu, Alzheimer, Parkinson og fleira og þar tóku þátt 14 manns); stofnunin ASTER TRE, sem er fyrir yngri.
- Brussel (Belgía), Maison des Femmes de Schaerbeek sem er opin stofnun fyrir allar kynslóðir þar sem hægt era ð taka þátt í mismunandi athöfnum eða verkefnum (list, sýningar, hópastarf og fleira) og hér fork verkefni Euro Idea fram með APP, TBW og MEMORO fyrir eldri borgara og yngri innflytjendur sem voru konur.
Aðferðin fólst í:
- Hlustun með heyrnatól á tónlist með Mozart sem er filterað og ekki-filterað á milli 1000 and 3000hz (sem svarar til tónlistana á tungumálinu).
- Viðeigandi langur hlustunartími.
- Frásögn (að eigin vilja) þáttakenda af upplifuninni undir hlustun þar sem tekið er tillit til hvíldar, aflsöppun, vellíðan og þreytu.
- Minningar sem komu á yfirborðið undir hlustuninni.
- Eftir þessa einstaklingsvinnu þá var hópavinna.
Eftir hlustun máttu þáttakendur teikna.
- Reykjavík (Ísland), á Hrafnistu, þá var APP fyrir öllum þeim sem voru í dagþjálfuninni. Við notuðum iPad sem var með APP appinu LIT og þar gátu þátttakendur nota appið daglega í hvíldartímanum eftir hádegismatinn. Það voru um 4-5 manns sem notuðu appið daglega. Hver og einn í 30 mínútur 2-4 sinnum í viku. Þátttakendur voru jákvæðir og fannst að hlustunin skerpti á hugsuninni og bætti einbeitinguna, þetta var hressandi og þessar 30 mínútur var jákvæður hvíldartími án þess þó að sofna. Eftir tilraunartímabilið þá héldum við áfram á nota APP allt sumarið.
- Litháen - Vilníus, Mykolas Romeris University 11 starfsmenn í félagsþjónustu sem voru við vinnu í félagsþjónustunni í Vilnius fengu 8 tíma námskeið þann 23.apríl 2015. Annar hópur af nemum var hópur frá “Social Work Bachelor Degree Programme” þriðja árs nemar sem voru í verknámi á stofnunum í öldrunargeiranum. Þátttakendur upplifðu ánægju og örvun við að nota aðferðina og þetta jók kunnáttu þeirra á kenningunum og hvernig hægt er að nota aðferðina.
Veikir punktar
- Við notkun á þessari aðferð þarf þjálfað starfsfólk.
- Niðurstöður úr rannsókn eru háðar því að það séu tæki og tól til staðar: höfuðtól og hátalarar. Tækin verða að vera í góðu lagi og góðum gæðum.
- Ef nota eigi hátalara þá er staðsetning á þeim í herberginu mikilvæg, þetta þýðir að umhverfið verður að vera aðlagað og skipulagt eftir þörfum aðferðarinnar.
- Bestu niðurstöður nást aðeins ef aðferðin er notuð reglulega.
- Í byrjun geta þátttakendur verið efins um að taka þátt því þeir eru ekki með fullan skilning á skynfærunum. Það þarf að útskýra og fræða þátttakendum um athöfnina svo þeir vilji taka þátt.
- Frá sjónarmiði félagsmótunar þá sýndu sumir þátttatekundur enga sérstaka breytingu.
- Það kom fram í tilrauninni að það er nauðsynlegt að hafa breitt úrval af tónlist.
Sterkir punktar
- Milli kynslóðaþátturinn hafði mest jákvæð áfhrif á hlustuarferilinn og munnlega samskiptafærni.
- Þjálfunin leiddi til aukinnar skynjunar og aðgreiningu á hljóðum, einnig bættingu á nokkrum vitsmunalegum skynjunum svo sem minni, einbeitingu og athygli.
- Þjálfunin hafði jákvæð áfhrif á samskiptahæfileika: aukin samskipti átti sér stað hjá meira hluta þátttakenda, sérstaklega í gegnum skapandi störf eins og listmálun.
- Hlutinn “Focus” hafið jákvæð áfhrif á samskiptahæfnina.
- Þjálfunin hafði jákvæð áhrif á hreyfifærni allra þátttakenda; þegar sjúkraþjálfun fór fram þá var hlustað á “Motor” stundum í klukkutíma, í staðinn fyrir 25-30 mínútur. Jafnvel þátttakendur með Parkinson sjúkdóminn sýndu aukna hreyfifærnu og getu.
- Allir þátttakendur sýndu mikinn áhuga, jafnvægi og jákvætt hugarfari þegar á þjálfun stóð. Þeir töluðu um aðferðina við báða starfsmennina og gáfu jákvæða svörun.
- Sumir þátttakendur upplifðu bætingu á heyrn og óskuð sér að þetta myndi einnig virka á sjónina.
- Það var bæting á verklegum athöfnum þegar gerðar voru hlustunaræfingar.
- Starfsmennirnir voru ánægðir með APP aðferðina (LIT appið), og fannst það bæði vera ódýrt og auðvelt í notkun, og það gæfi frá sér bætingu í hug og líkama við notkun á aðferðinni.
- Á heildina litið þá var upplifunin á stöðunum mjög jákvæð. Æfingarnar voru afslappandi og höfðu róandi áhrif.
Athugasemdir þegar þjálfunin átti sér stað:
- Þátttakandi á fjórða degi tilraunarinnar þurfði ekki róandi meðferð sem hann hafði fengið dagslega áður.
- Þátttakandi með þunglyndi sýndi aðferðinni sérstakan áhuga. Þegar tilraunin átti sér stað þá byrjaði eiginmaður þátttakandans á sömu Dagdvöl og það var haldið að myndi veita henna truflu, svo var ekki og hún sýndi mikla ró og jákvætt viðhorf.
Myndbandleiðbeiningar fyrir APP aðferðina
TRANSCULTURAL BIOGRAPHY WORK (TBW)
Tilfelli og reynsla
TBW aðferðin var kynnt á námskeiði EU sem var þjálfun fyrir starfsfólk hjá sameigundum (starfsmenn og aðrir) og var framfylgt í eftirfarandi tilraunaverkefnum:
- Austurríki – Graz. Teymi með 2 þjálfurum, Andrea Gaal og Elisabeth Schrattner, sem unnu saman í hópaþjálfun með notendum dagdvalar og öðrum stöðum, þar sem unnið var að því að finna áhugasvið eldri borgara.Þær notuðu skapandi aðferðir til að virkja eldri borgarana. Mikilvægur þáttur í hópastarfinu var TBW aðferðin. Hún var notuð almennt til að deila minningum, taka þær upp og gera þær tilgækar sem viðtöl. Í allt tóku þátt 61 einstaklingur í 5 hópum (12 skipti) og einnig í einstaklings athöfnum. 37 af þeim tóku þátt tvisvar sinnum.
- Belgía – Brussel, Maison des Femmes de Schaerbeeck er opin stofnun fyrir alla aldurshópa þar sem lagt er áherslu á tómstundir (list, sýningar, hópastarf og fleira) og þar fór fram tilraunaverkefni Euro Idea, einnig voru (APP og MEMORO) notað fyrir eldri borgara og yngri kvenkyns innflytjendur. Euro Idea kynnti TBW aðferðina emð því að nota landakort, póstkort, ljósmyndir, hluti sem voru tengdir minningum og síðast en ekki síst myndirnar sem þátttakendur bjuggu til þegar þeir voru í hlustunarfasanum (APP)
- Ísland – Reykjavík, Hrafnista aðlagði TBW í þeirra eigin minningarvinnu sem er kölluð Lífssaga. Við vorum byrjuð að nota Lífssöguna á hjúkrunarheimilinu sérstaklega fyrir þá sem eru með vitræna skerðingu. Við byrjuðum á því að kynna Lífssöguna fyrir dagþjálfuninni. Starfsmaður dagþjálfunar, Guðmunda, kynnti aðferðina fyrir um það bil 25 manns þátttakendum. Dagþjálfunin gefur öllum þeim sem eru í dagþjálfun bækling um hvernig þeir eia að gera sína eigin Lífssögu, hvaða spurning eru góðar að nota og hverjir eru möguleikarnir. Flestir af þátttakendunum oru jákvæðir og viljdu byrja heim a með fjölskyldunni sinni og öðrum fannst þetta áhugavert en ekki á þessari stundu. Okkar markmið var að þegar einstaklingar flytja á öldrunarheimili þá eru þeir búnir að gera sína eigin Lífssögu sem þeir geta kynnt fyrir starfsmönnum. Þetta hentar mjög vel sérstaklega þeim sem eru með vitræna skerðingu.
- Ítalía - Palermo (Sikiley): TBW var aðallega notað af sérfræðingum og starfsmönnum á eldri hjúkrunarheimli sem lagði grunn fyrir undirbúning á MEMORO viðtölunum. 13 þátttakendur sem tóku þátt í minningarvinnunni og minningaræfingunum sem tengdar voru hverdagslífinu: trúmálum, mat og drykk, lífið í gamla daga í Palermo, atvinna (póstkort notuð til hjálpar og einnig listaverk eftir uppákomunum í Saint Joseph).
- Litháen – Vilníus, september 2014 og febrúar 2015 – TBW aðferðin (markmi, innihald og ferli) kynnt fyrir hóp af þriðja árs nemum Mykolas Romeris University (26 litháar og 13 af öðrum uppruna). Námskeiðið gekk vel; þátttakendur deildu reynslu og tilfinningum, tóku virkan þátt í öllum verkefnum. Allir í hópunum lögðu áhersu á að þetta gaf af sér aukið sjálfstraust og áherslu á eigin styrklega. Meðan minningarvinnan fór fram, sérstaklega í hópastarfinu, þá jókst bjartsýni og orka hjá þátttakendum. Þetta eflir starfsmenn í að skapa eigin framtíð og setja sér markmið.
Veikleikar
- Það getur truflað þátttakendur að fara í ný herbergi og kynnast nýju fólki. Sjálfsmeðvitund kemur með kunnuglegu umhverfi, þar sem hægt er að einbeita sér að því sem maður er spurður: háhersla á þeirra sögur, árhersla á innri sambönd.
- Starfsmenn og tengiliðir innan stofnunarinnar verða að vera vel upplýstir. Eldra fólk hefur mikið traust til starfsfólks í aðhlynningu. Það getur verið erfitt fyrir nýja leiðbeinendur að bjóða upp á nýjar leiðir fyrir þátttakendur þegar það er ekki búið að skapast traust á milli þeirra.
- Aðaláhyggjuefnið varðandi TBW aðferðinni og tækninni er þegar upp koma minningar um erfiðar og óþægilegar minningar um reynslu eða hræðslu. Það getur verið erfitt að halda stjórn á þeim aðstæðum.
- TBW aðferðin inniheldur mikla tækni varaðndi reynslu sjálfsævisagna og persónulegar upplýsingar. Það er mikilvægt að það sé þagnarskylda í hópnum og hjá starfsfmönnum.
- Upplýsingaflæði í TBW námskeiði er nauðsynlegt og að þjálfarar taki tíma til að útskýra tilganginn með TBW aðferðinni, fá fólk til að vera afslappað og leyfa þeim að prófa sig áfram með TBW tæknina.
Styrkleikar
- Örvar samskipti. Samskipti á milli þátttakenda verða þýðingarmeiri og flóknari og þátttakendur deila meiru frá sínu persónulega lífi.
- Þetta leiðir til endurreisn félagsmótunar sem er byggð á viðurkenningu og samþykki hvers og eins.
- Þetta eykur sjálfstraust þátttakenda.
- Yngri þátttakendur sýndu TBW mikinn áhuga og sér í lagi reynslu eldri þátttakenda.
- Margmenningarleg hlið í minningarvinnunni vekur áhuga annara og örvar forvitni í hópnum, það verður eykur sameiginlegan lærdóm hópsins.
- Viðtölin leiddu aðallega til reynslusögum um veikindi.
“Kærar þakkir og vertu velkominn aftur!“
; Þátttakendur voru ánægðir með heimsóknina af starfsmönnum, þar sem hún fór fram í þeirra eigin umhverfi og þeir gáðu upplifað sig sem gestgjafi.
- Þátttakendur geta horft tilbaka á mikilvæga atburði í lífi þeirra með nálgun TBW og þekkt aðstæður þar sem þeir hafa lært, byggt á eða uppnáð nýrri hæfni.
- TBW hjálpar til að við að vera hluti af einhverju og að búa saman í stærra samhengi.
- Leiðbeinendur og nemar samþykkja þessa aðferð og finnst hún nytsamlega í vinnu og í námi.
- Starfsmenn og nemar lærðu nýja hæfni og jákvæða reynslu við að nota aðferðina.
- Verkfærin sem voru notuð vöktu áhuga hjá leiðbeinendum og sérfræðingum sem unni með eldri borgurum, svo það var auðvelt að kynna fyrir þeim aðferðina og setja þau inn í hlutina.
- Skjólstæðingar, aðallega þeir sem voru í dagdvölinni, gátu fengið aðstandur til liðs við sig og ef til vill gera saman minningarbók um þeirra líf.
STAFRÆN VIÐTÖL (MEMORO)
Tilfelli og reynsla
Memoro aðferðin var kynnt á námskeiði EU fyrir starfsfólk meðeiganda verkefnisins (starfsfólki og öðrum) og það var farið nánar í aðferðina í eftirfarandi tilraunaverkefnum:
- Austurríki - Graz: 61 eldri borgari tók þátt í 5 tilraunaverkefnum (12 skipti) og einstaklingsverkefni í eigin heimili. 37 af þeim tóku þátt tvisvar sinnum, 29 af þeim samþykktu að viðtölin væru tekin upp á mynd eða hljóðbandi. Yngsti þátttakandinn var fæddur 1949 og elsti 1919. Niðurstöður má einnig sjá á austurrísku síðu Memoro: http://www.memoro.org/at-at/
- Belgía - Brussel, til að útvega efni fyrir minningarbankann þá tók Euro-Idea viðtal við listamanninn, Mrs. Francine Somers og gerði með henna 3 myndbönd. Mrs. Somers vildi gjarnan deila sínum minningum og reynslusögum, sem henni fannst nauðsynlegt að næsta kynslóð myndi heyra.
- Ísland - Reykjavík, Hrafnista - Memoro viðtölin voru skipulögð af Oddi Albertssyni og fóru fram í dagþjálfun heimilisins. Oddur kynnti verkefnið fyrir þátttakendum í samkomusal heimilisins. Um það bil 15 manns tóku þátt og það voru einnig umræður og fólk deildi minningum um gamla tíma. Seinna þá kom Oddur með tvo gagnfræðiskólanema sem tóku viðtal við 3 þátttakendur sem voru í dagþjálfuninni.
- Ítalía - Palermo (Sikiley) við fengum 10 sjálfboðaliða með okkur í að taka viðtöl á myndband, einnig starfsmenn á hjúkrunarheimilinu og þar var fólk jákvætt að deila minningum og sögum. Sögurnar voru aðallega úr daglegu lífi: eignast barn, seinni heimstyrjöldin, fara af heiman í fyrsta skipti og margt fleira.
- Ítalía - Vicenza (Veneto), StudioCentroVeneto fékk til liðs við sig stofnuna OASI og ASTER TRE Association, þar sem fór fram vinnustofa með Memoro sérfræðingi og þátttakendur voru um 30. Fondazione OASI gaf leyfi fyrir að 3 af þeirra heimilum tæku þátt í MEMORO aðferðinni: Soave, San Bonifacio, Gazzo Veronese. Það var rætt um fyrstu árin í skóla, fyrsta vinnan, brúðkaup og margt fleira. Þetta fer ennþá fram í Fondazione OASI; og við viljum sérstaklega þakka innlegg og þátttöku frá Consulta Anziani of Vicenza Municipality og IPAB Vicenza, og annara öldrunarheimila sem tóku þátt – “Isituto Salvi” – þar voru 3 myndböndsviðtöl tekin upp og sett á heimasíðu Memoro. Innihaldið var aðallega hlutverk fótbolta í lífi eldri borgara.
- Litháen – Vilníus – Memoro aðferðin (markmið, innihald og ferli) var kynnt fyrir þriðja árs nemum við Háskólann í Mykolos Romeris. Nemarnir tóku í byrjun viðtöl við hvort annað og fundu að það var erfitt að gera slíkt. Nemarnir fengu það verkefni að taka eitt viðtal við eldri borgara sem býr á öldrunarheimil. Sérstök áhersla var lögð á góð gæði í tilraunaverkefninu og það var gert með því að gæðaaðferðir voru kynntar fyrir nemum, upplýsingamiðlun við nema eftir að viðtal fór fram (feedback), þjónustukönnun í skólanum meðal þeirra sem tóku viðtal, umræður í hópum, leiðbeiningar frá Memoro og margt fleira.
Veikleikar
- Ungir sjálfboðaliðar, yfirleitt alltaf nemar við háskólann, vildu taka þátt í þessu tilraunaverkefni.
- Fólk sem býr heima eru krítískir fyrir því að taka þátt í myndbandi eða það sé sett á internetið og fólk álítur það hættulegt.
- Mikilvægur þáttur eru tæknibúnaður og sérstaklega hátalararar. Hljóðvandamál var áberandi mikið við fyrstu viðölin.
- Þegar tekið er upp viðtal þegar aðrir þátttakendur eru tilstaðar er nauðsynlegt að hafa skilti þar sem skrifað er á
“vinsamlegast truflið ekki – viðtal í gangi”
Starfsfólk var beðið um að sleppa því að bjóða mat og drykk þegar á viðtalinu stóð. Allir þátttakendur verða að gera sér grein fyrir því að það má ekki tala meðan upptaka fer fram.
- Yfirmenn stofnana hefðu getað stoppað Memoro viðtölin vegna einkalífs einstaklingsins, sérstaklega vegna aðstandenda eldri bogarans út af myndbandsþáttarins.
- Fyrir suma nema var það erfitt að fá fólk til að taka þátt í myndbandsviðtalinu.
- Sumum nemum fannst erfitt að finna við tæknina, búa til myndband og þetta var þeirra fyrsta reynsla af slíku.
- Út af því að þetta var fyrsta reynsla fyrir flesta nemana, þá voru gæði viðtalana ekki nógu góð (stundum vantaði hljóð, stundum of há hljóð og margt fleira).
- Uppástungur fyrir framtíðina: meiri tíma fyrir undirbúning á tæknilegu og hvernig á að taka upp viðtal; kenna og þjálfa nemum í að taka viðtal og sýna samkennd og hvernig á að biðja fólk að taka þátt í viðtalinu.
- Leggja áherslu á betri hljóðgæðum í viðtalinu.
- Tengiliður hins aldraða verður að vera vel upplýstur. Hinn aldraði hefur mikið traust til tengiliðsins. Það getur verið erfitt fyrir nýjan starfsmanna að koma með nýja hluti þegar það er ekki búið að skapast sameiginlegt traust á milli þeirra.
- Fólk er hrætt við myndavélina og er óöruggt. Það vill ekki sýnast “vitlaust” og skilja oft ekki hvernig internetið virkar. Einnig er hræðsla varðandi hvernig er notað.
Styrkleikar
- Viðtalið leiðir oft að sér óskir og vandamál sem hægt er að mæla. Slíkar mælingar bæta lífsgæði.
- Oft sagt:
“já auðvitað, þetta vita börnin mín”
Sjaldan sagt: “hver vill nú heyra um þetta”
, “ég vil nú ekki vera byrði á aðra með því að tala um þetta”
, “enginn vill heyra um þetta”
Aldrei sagt: “ég verð að segja þér eitthvað sem ég hef engum sagt. (en alls ekki fyrir framan myndavélina)”
– þátttakendur vildu segja f´ra atburðum sem þeir hefur ekki sagt frá.
- Það voru jákvæð viðbrögð við myndböndunum. Starfsfólk sagði að það var sérstaklega hjá ættingjum sem voru mjög ánægðir með að minningar ættvina þeirra voru teknar upp.
- Tengslamyndnunin sem varð tilstaðar í þessu MEMORO verkefni getur leitt að sér meiri samvinnu í framtíðinni í öðrum verkefnum.
- Þegar eldra fólk er sett fyrir framan myndavél þá getur það oft komið á óvart og það hefur mikinn áhuga á að segja sína sögu.
- Þrátt fyrir tæknileg vandamál þá voru öll viðtöl hjá nemum kláruð.
- Svörun við þessari reynslu var jákvæð. Þau gátu sagt frá mörgum áhugaverðum hlutum úr æsku sinni og lífi sínu. Þeim fannst þessi reynsla vera jákvæð og þau voru stolt af útkomunni.