Niðurstaða og frekari aðgerðir
Við viljum hérmeð deila mati okkar á þessum aðferðum og veita ykkur fleiri hugmyndir hvernig hægt sé að nota þessar aðferðir á stofnunum og öðrum stöðum. Við vonum að þetta hafi vakið áhuga ykkar og að þið viljið hafa meiri samskipti við INNOMEC meðeigendurna og sérfræðinga.
Aðalniðurstöður sem náðust í þessu verkefni eru eftirfarandi:
- Bæting á munnlegum samskiptum hjá hinum aldraða og að það minnkaði félagslega einangrun, aukið sjálfstraust hjá hinum aldraða og meiri virðing fyrir hvort öðru í hópunum.
- Blöndun á kynslóðum hefur haft mikið vægi hjá tveimur týpum af þátttakenddum, blöndun á kynslóðum hafði það í för með sér ný þekking öðlaðist hjá yngri þátttakendum og staðfesting á mikilvægi lífsreynslu öðlaðist hjá eldri þátttakendum, sem breikkaði félagslíf þeirra.
- Báðir aðilar (kynslóðir) nutu góðs af samskiptunum, einnig góð áhrif hjá sveitafélögum. Einn neminn sagði:
„þetta var góð sameiginleg reynsla fyrir okkur bæði – eldri og yngri kynslóðir“
.
- Það var auðveldara að ræða saman í afslöppuðu umhverfi, um minningar sérstaklega þær sem voru sársaukafullar. Þetta á einnig við um minningar sem voru gleymdar og grafnar.
- Oft þá þekkir eldra fólk ekki, þó svo að það hittist daglega. Stýrðar hópaumræðu voru mjög hjálplegar til að kynna fólk og hefja samskipti.
- Að deila minningum getur verið uppbyggjandi reynsla eins og í „Lífssagan“ og MEMORO. Þegar skjólstæðingar deila sögum sínum með öðrum þá geisla þeir eftir reynsluna og eru stoltir af sjálfum sér.
Frjá sjónarhorni sérfræðingsins, Antonella Dessi talmeinafræðingur, þá er þetta árangurinn af þessum þremur aðferðum:
- Fyrir APP: virkja hluta heilans, hægri hluta – APP aðferðin er mjög áhrifarík í að virkja athyglisstöðina í heilanum og bætir vitræna skerðingu – Heyrn er starfsemi eyra, að hlusta er vitsmunaleg starfsemi – Hlustunaraðferðir sem APP mælir með vekur sálrænar hliðar sem fela það í sér að greina og veita tilfinningarlegar upplýsingar. Meðferðarleg áhrif: minnkar kvíða, gefur aukna orku, bætir hlustun, þróar athygli og minningar, eykur samskipti, sköpunargleði (hægra heilahvel).
- Fyrir TBW: styrking persónunnar – Hvetur til að finna eigin lærdómsleiðir – Endursköpun á sjáfsmynd einstaklingsins – Minnkar kvíða sem hefur áhrif einstaklinginn og fjölskyldu hans- Eykur vellíðan – Örvar minningar og athygli - Örvar þátttöku hjá eldri borgaranum og hans aðstoðarfólki – Minnkar þörfina á umönnun – Hefur bein áhrif á einstaklinginn, virkjar athyglina sem er undirstaða minninga – Eykur þátttöku fjölskyldumeðlima – Mikil virkni í hópastarfi – Ávinningur á sál og líkama.
- Fyrir MEMORO starfræn viðtöl eru grunnþættirnir: það eru sömu grunnþættir og í lífsögu nálguninni, meiri þátttaka hjá yngri aðilunum og starfsmönnum, virkjar starfsmenn til að finna nýjar leiðir í td tæknimálum og hvernig hægt er að deila reynslu.
Aðalniðurstöðurnar fyrir markhópinn okkar, þátttakendur, starfsmenn og nema eru eftirfarandi:
- Starfsmenn eru áhugasamir um nýjar aðferðir sem geta bætt fagmennsku þeirra og tæknihæfni.
- Starfsmenn gátu séð virkni þessara þriggja aðferða (APP, TWB og MEMORO) og niðurstöður úr vinnu með aðferðunum. Sem hefur leyft eldri skjólstæðingum að eiga meiri samskipti og einnig kynna fyrir þeim tækninýungar sem gerir þeim kleift að fylgjast betur með í samfélaginu.
- Starfsmenn voru ánægðir með aðferðringar sem voru í boði. Vegna vöntunar á starfsfólki þá þurftu starfsmenn oft eða leggja aðaláhersluna á aðhlynningu og hjúkrun.
- Starfsmenn í Austurríki sýndu mikið frumkvæði og vildu gera sinn eigin landshluta í MEMORO gagnagrunninum þar sem þeir geta sett inn hugmyndir af verkefnum og hópastarfi, og starfsmennirnir tveir sem stóðu fyrir tilraunaverkefni INNOMEC ætla að halda áfram að þróa og bæta við í framtíðinni.
- Nemar í Litháen sögðu:
- Þau nutu þess að hlusta á eldri borgarana og að vinna úr stafræna viðtalinu (mátu aðferðina sem gagnlega og skapandi).
- Þau viðurkenndu að við upptöku á myndbandinu hafi hjálpað þeim til að virða eldri borgarana og þeirra persónuleika.
- Þau lögðu áherslu á að samskiptahæfni, hlustun og að tala sé mjög mikilvægt í að skapa tengsl við eldri borgarana/frakvæmd á öldrunarfélagsstarfi.
- Þau vildu gjarnan halda áfram vinnunni við að safna saman minningum og lífssögum með eldri borgurum.
- Nýir starfsmenn uppgötvuðu nýja hæfni í: teymisvinnu; læra nýjar aðferðir; bæta sambönd á milli gesta á þeirra heimili.
- Audio-Psycho-Phonology – APP er einnig hægt að veita sem einstaklingsmeðferð, ef þörf er á því. Ef eldri borgarar eru með Alzheimer eða mikla þá er meiri þörf á einstaklings meðferð. Þess var þó ekki þörf í þessu tilraunaverkefni.
- Að prófa nýja hluti vekur forvitni hjá fólk, það er nauðsynlegt fyrir skjólstæðinga og starfsólk í daglegu lífi. Farðu út fyrir þægindarammann alveg sama á hvaða aldri þú ert!
Helstu niðurstöður varðandi sveitafélög eru eftirfarandi:
- Það var vakin athygli á „life long learning“ – „Þú lærir svo lengi sem þú lifir“ prógramminu í þessu verkefni og hún kynnt fyrir nýjum tengiliðum, stofnunum og stefnumótandi aðilum í samfélaginu.
- Mikilvægi fjölmenningarþáttarins og samskipti milli kynslóða, móta samstöðu aldraða og annarra og opnaði fyrir nýjar hugsanir í tengslum við nýjar upplýsingar og gögn sem hjálpa til við að taka ákvarðanir.
- Viðkvæmni hjá sveitarfélögum, næsta stig í stofnununum er varðar velferð og félagsleg úrræði gáfu stuðning í sumum löndunum í INNOMEC. Þó verðum við að nefna einangrað tilfelli; einn framkvæmdarstjóri á öldrunarheimili lýsti því að hann efaðist um þörfina á fræðslu á öldrunarheimilum!
Okkar tillögur til að kynna aldurs-vænar nýjungar í fræðslu:
- Það sem er mikilvægast til að tryggja víðtækustu áhrifin á aukinni fræðslu er að halda áfram í að miðla upplýsingum til viðeigandi stofnana, lokað eða opið, og hafa bein samskipti við pólitíska hópa sem geta breytt hlutum, á staðbundum og evrópskum vettvangi.
- Standa frammi fyrir þeirri staðreynd að fjölgun eldri borgara og innflytjenda er komin til að vera, að milliverkun eins og þessi sé hægt að nota fyrir allar kynslóðir og margmenningarsamfélag.
- Það er nauðsynlegt að tala um plön og hugtök á núverandi stundu. Umræður ættu að fara fram fyrir verkefnin og einnig með starfsmönnum og umönnunaraðilum. Þetta á einnig við um gögnin og aðferðirnar sem notaðar eru í verkefninu. Það gerir allt samstarf auðveldara.
- Það er mikilvægt að starfsmenn og þjálfarar séu sveiganleg er varðar skipuag og aðferðir, taka tillit til aðstæðna hjá hverjum og einum, stærð hópsins og einstaklingsþarfa þátttakenda. Þetta þýðir að langvarandi nákvæm plön eða sérstakar væntingar og fyrirfram skipulagðar aðstæður eru ekki mögulegar.
- Samkennd hjálpar okkar fólki við að slaka á og opna sig. Til dæmis ef fólk er kvíðið eða stressað í byrjun viðtalsins þá hverfur það oft þegar fólk finnur fyrir virðingu og það sé hlustað á það með áhuga og enginn sé að dæma eða greina.
- Það er mælt með að aðstæður séu skoðaðar fyrir viðtal (lýsing, rými, hávaði, sérstakt herbergi fyrir upptöku á viðtalinu).
- Það er betra að vinna í litlum 5 manna hópum.
- Undirbúningur á þátttakendum er mjög mikilvægur fyrir verkefnið.
- Vertu sveigjanlegur! Reyndu að bjóða upp á mismunandi og öðruvísi, allt eftir umhverfinu og þátttakendum.
- Prófaðu og prófaðu svo aftur. Vertu raunsær í skipulagningunni.
- Það að deilda reynslunni með öðrum evrópskum stofnunum leiðir af sér meiri skilning um þeirra eigin skipulag og fagmennstku, sem sýnir þá virkni á jafningjafræðslu og „læra með að gera“ aðferðinni.
- Svona frumkvæði hvetur fólk áfram í umönnun og bætir gæði í þjónustunni.
Lagarammar, uppbygging stofnana, stefnur yfirvalda hafa auðvitað mikilvæg áhrif á kynningu á nýsköpunaraðferðum í öldrunargeiranum. Við verðum einnig að tilkynna að virðing fyrir réttindum starfsmanna er oft lítil. Vöntun á langtímaplani fyrir öldrunarþjónustuna hefur áhrif á vinnuumhverfi starfsmanna, stress og áhyggjur fyrir starfsmenn. Sem hluti af fræðslusamfélagnu verðum við að passa okkur á hættunni að verða ekki tapararnir í að bæta „umhverfið“ og aðstæður. Við ættum að taka til fyrirmyndar góðar starfsvenjur meðeiganda í verkefninu – Hrafnista á Íslandi. Það þarf heildræna hugsun í að bæta aðstæður til að geta boðið upp á hágæða umönnunarþjónustu. Til að gæta jafnræðis í allri Evrópu, þá hafa allir nóg að gera, og með uppástungum INNOMEC bjóðum við upp á okkar framlag sem við vonumst til að nýtist ykkur. Láttu okkur vita hvað þér finnst! [taktu þatt í könnun nr.5 á Innomec.eu]